Erlent

Kvikmynd um Mannerheim

Finnar og Rússar ráðgera að gera í sameiningu kvikmynd um Carl Gustaf Emil Mannerheim, þjóðhetju og yfirmann finnska hersins í heimsstyrjöldinni síðari. Gert er ráð fyrir að myndin kosti tólf til fjórtán milljónir evra og verður hún þá dýrasta myndin í sögu finnskra kvikmynda. Myndinni verður leikstýrt af leikstjóranum Renny Harlin, að sögn.

Til er leikrit um Mannerheim á finnsku en ekki er vitað á hvaða máli myndin um Mannerheim verður. Stefnt er að því að taka myndina snemma á næsta ári og frumsýna síðla ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×