Erlent

Ban vill loka Guantánamo-búðunum

Ban Ki-moon,  framkvæmdastjóri SÞ.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ. MYND/AP

Ban Ki-moon, nýr framkvæmdastjórI Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að loka ætti fangabúðum Bandaríkjamanna við Guantánamo-flóa og tók þar með undir með forvera sínum í embætti, Kofi Annan.

Fimm ár voru í gær frá því að búðirnar voru opnaðar og var þess krafist víða um heim að þeim yrði lokað hið fyrsta, þar á meðal hér á landi. Ban var hins vegar varkárari í yfirlýsingum þegar kom að tilkynningu Bush forseta um fjölgun hermanna í Írak og sagðist hann fagna öllum tilraunum til að bæta ástandið þar í landi. Sameinuðu þjóðirnar myndu sem áður vinna að því að koma á friði í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×