Erlent

Drottningin tilnefnd til BAFTA

Túlkun Helen Mirren á Elísabetu Bretadrottningu er tilnefnd til bresku kvikmyndaverðlaunanna BAFTA og myndin sjálf hlýtur flestar tilnefningar, alls tíu talsins. Þá hlýtur njósnari hennar hátignar einnig tilnefningu, Daniel Craig er tilnefndur fyrir besta aðalhlutverk karla fyrir Casino Royale. Sú mynd fær næstflestar tilnefningar, eða níu. Verðlaunin verða afhent þann 11. febrúar.

Það er ekki óalgengt að ein mynd eða tvær hljóti langflestar tilnefningar en óvenju margar myndir hlutu fleiri en fimm tilnefningar í þetta skiptið. Þar má meðal annars nefna grásvörtu gamanmyndina Little miss sunshine og The devil wears Prada. 

Drottningin keppir um titilinn besta myndin við myndir á borð við The Departed, The last king of Scotland, Little miss sunshine og Babel. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×