Fótbolti

Eggert maður leiksins í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eggert í leik með íslenska U-21 landsliðinu gegn Austurríki í Grindavík á þriðjdaginn síðastliðinn.
Eggert í leik með íslenska U-21 landsliðinu gegn Austurríki í Grindavík á þriðjdaginn síðastliðinn. Mynd/E. Stefán

Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn með skoska úrvalsdeildarliðinu Hearts sem tapaði, 3-1, fyrir Dundee United á heimavelli í dag.

David Robertson, Jordan Robertson og Barry Robson komu Dundee United í 3-0 áður en Laryea Kingston minnkaði muninn á lokamínútu leiksins.

Á heimasíðu Hearts var Eggert Gunnþór valinn besti maður leiksins.

Fyrr í dag tapaði Celtic fyrir Rangers, 3-0, en tryggði sér engu að síður toppsætið í deildinni. Það er þar sem Hibernian tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu, fyrir Motherwell á úitvelli, 2-1.

Hearts er í sjötta sæti deildarinnar með fjórtán stig eftir tíu leiki, átta stigum á eftir toppliðunum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×