Ætlum að ná FH 26. maí 2007 09:00 Gömlu landsliðsfélagarnir Helgi Sigurðsson og Rúnar Kristinsson gantast á Laugardalsvellinum í gær. MYND/Daníels
Valsmenn unnu í fyrradag góðan sigur á KR á heimavelli, 2-1. Helgi Sigurðsson átti frábæran leik og skoraði bæði mörk Vals sem er enn taplaust og situr í öðru sæti deildarinnar með sjö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. „Það var auðvitað mikilvægt að ná þessum þremur stigum og ekki skemmdi fyrir að hafa skorað þessi mörk. Ég er því mjög sáttur í dag,“ sagði Helgi við Fréttablaðið í gær. Valur og FH eigast ekki við fyrr en í áttundu umferð en síðarnefnda liðið er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Helgi Sigurðsson hræðist þó ekki Íslandsmeistara síðustu þriggja ára. „Ég veit vel að það er hægt að stoppa FH. Við ætlum að reyna að standa í þeim eins lengi og hægt er og helst að komast fram úr þeim,“ sagði Helgi. „Það er líka ljóst að liðin sem spila við FH verða að hafa trú á því að það sé hægt að stoppa liðið. Mér sýnist oft að þessi lið séu fyrirfram búin að tapa leiknum. En ég ætla ekkert að gera lítið úr FH. Það eru frábærir leikmenn í liðinu og þeir eiga allt það skilið sem þeir hafa unnið síðustu árin.“ Helgi segist sáttur við stöðu liðsins í deildinni. „Okkur fannst við reyndar vera rændir í fyrsta leiknum gegn Fram þegar við áttum að vera búnir að gera út um leikinn en fengum jöfnunarmarkið á okkur í lokin. En það sýndi gríðarlega mikinn karakter í okkar liði að lenda undir gegn Fylki og KR en vinna svo báða leikina. Það er góður stígandi í okkar leik og var til að mynda fyrri hálfleikur hjá okkur gegn KR mjög vel spilaður af okkar hálfu.“ Félagaskipti Helga frá Fram í Val í vetur voru mjög umdeild og mikið rætt og ritað um þau. „Þetta var erfitt á meðan þessu stóð en ég er löngu kominn yfir það. Það eru engin vandamál milli mín og Fram lengur. Nú einbeiti ég mér að því að gera góða hluti með Val. Við þurfum að hala inn stigum til að halda í við FH.“ Hann er þess fyrir utan ánægður með nýja félagið og eigin frammistöðu til þessa. „Ég vissi þegar ég fór í Val að þetta væri gott lið með góðan mannskap og það hefur ekkert brugðist. Ég hef líka alveg sloppið við meiðsli síðan ég kom heim og hef æft vel í vetur. Það er að skila sér nú.“ Spurður um hvað hafi komið sér mest á óvart í vor, segir hann gengi HK vera athyglisvert. „Þetta er mikið stemmningslið sem verður erfitt heim að sækja. Staða KR kemur einnig á óvart en miðað við hvernig liðið er að spila finnst mér það ekki hafa átt meira skilið en þetta eina stig sem það hefur fengið. Hópurinn er talsvert sterkari en staða liðsins í deildinni gefur til kynna en liðið er ekki að spila eins og lið sem á að vera í toppbaráttunni.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ung kona vinnur gull og verður fyrir fordómum og niðurlægingu“ Sport Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Fótbolti Rústaði á sér fótunum en varð samt stjarna leikanna Sport „Hann er ekki á einhverju klinki hérna“ Körfubolti Tveir fluttir á sjúkrahús eftir harkalegt slys Sport Willum þurfti að hætta út af of miklum snjó Fótbolti Sló 30 ára gamalt Íslandsmet Sport „Þeir gera allt til þess að blekkja okkur“ Fótbolti Blikar að landa Ívari Íslenski boltinn Hvorki Danir né Grænlendingar með grænlenska fánann á leik Bandaríkjanna Sport Fleiri fréttir „Þeir gera allt til þess að blekkja okkur“ Blikar að landa Ívari Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Sigdís Eva hetjan í fyrsta leik KA vann meistarana og Stígur Diljan sá rautt Willum þurfti að hætta út af of miklum snjó Gerðu góða ferð yfir litla beltið Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Nökkvi lagði upp í Íslendingaslagnum Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Karólína hetjan á ögurstundu Grátlegt hjá Íslendingaliðinu Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum KSÍ dregur úr verðhækkunum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Mark dæmt af Orra á Bernabéu Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Sjá meira