Létu slökkviliðsstjóra Bolungarvíkur ekki vita af lokunum á símasambandi 13. ágúst 2007 19:30 Höfnin í Bolungarvík. MYND/365
Síminn lét slökkviliðsyfirvöld í Bolungarvík ekki vita af fyrirhuguðum lokunum á símasambandi í bæjarfélaginu í nótt. Slökkviliðsstjórinn frétti fyrst af málinu í fjölmiðlum síðdegis í dag. Allt símasamband í Bolungarvík verður rofið í tvo klukkutíma í nótt vegna viðhaldsvinnu. Bæjarstjórinn er afar ósáttur við framgöngu Símans í málinu. „Ég frétti fyrst af þessu þegar ég las tilkynningu frá Símanum á mbl.is um fimmleytið í dag," sagði Ólafur Benediktsson, slökkviliðsstjóri Bolungarvíkur, í samtali við Vísi. „Ég trúði ekki mínum eigin augum og hafði strax samband við Neyðarlínuna til að staðfesta þetta. Sá aðila sem ég talaði við þar var hins vegar ekki búinn að heyra af þessu. Þetta er mjög alvarlegt enda nauðsynlegt að allir viðbragðsaðilar viti af svona lokunum." Vegna viðhaldsvinnu verður allt símasamband í Bolungarvík rofið milli klukkan tvö til fjögur í nótt. Farsímasamband mun einnig rofna. Bæjarbúar verða því sambandslausir við umheiminn í tvær klukkustundir. Bæjaryfirvöld í Bolungarvík fréttu fyrst af fyrirhuguðum lokunum klukkan tvö í dag. Grímur Atlason, bæjarstjóri Bolungarvíkur, sendi fyrr í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann gagnrýnir framgöngu Símans og segir ljóst að bæjaryfirvöld hefðu átt að fá tilkynningar um málið miklu fyrr. Segir hann um grafalvarlegt mál að ræða.„Það er ljóst að þessu máli er ekki lokið af hálfu bæjaryfirvalda í Bolungarvík," sagði Grímur í samtali við Vísi. „Síminn þarf að breyta verklagsreglum í svona málum."
Tengdar fréttir Allt símasamband í Bolungarvík rofið - grafalvarlegt mál segir bæjarstjóri Bæjastjórinn í Bolungarvík gagnrýnir Símann harðlega fyrir að láta bæjaryfirvöld vita of seint af fyrirhuguðum viðgerðum á símstöðinni í Bolungarvík. Allt símasamband í Bolungarvík fellur niður milli klukkan tvö og fjögur í nótt vegna viðgerða þar á meðal samband við Neyðarlínuna. Bæjarstjórinn segir um grafalvarlegt mál að ræða. 13. ágúst 2007 18:00 Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira
Allt símasamband í Bolungarvík rofið - grafalvarlegt mál segir bæjarstjóri Bæjastjórinn í Bolungarvík gagnrýnir Símann harðlega fyrir að láta bæjaryfirvöld vita of seint af fyrirhuguðum viðgerðum á símstöðinni í Bolungarvík. Allt símasamband í Bolungarvík fellur niður milli klukkan tvö og fjögur í nótt vegna viðgerða þar á meðal samband við Neyðarlínuna. Bæjarstjórinn segir um grafalvarlegt mál að ræða. 13. ágúst 2007 18:00