Vígslubiskup harmar atburðina í Breiðuvík 11. febrúar 2007 19:11
Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, kveðst harma þá atburði sem gerðust í Breiðuvík, en hann starfaði þar um tíma á sjöunda áratugnum. Hann kveðst þó aldrei hafa séð líkamlegu ofbeldi beitt þar en eftir að hann heyrði orðróm um slíkt frá drengjunum hafi hann gengið á fund yfirvalda og hvatt til að heimilinu yrði breytt.Á námsárum sínum, fjögur sumur í röð, frá 1966 til 1970, starfaði Sigurður Sigurðarson við heimilið í Breiðuvík. Hann er nú biskup í Skálholti og þar tókum við hús á honum í dag.Sigurður kveðst harma það sem fram hafi komið en fagnar því að stjórnvöld virðast ætla að bregðast skjótt við og kanna þetta vel.Hann segist ekki hafa séð líkamlegu ofbeldi beitt í Breiðuvík en neiti því ekki að sér hafi borist ávæningur um slíkt frá drengjunum, þó ekki í djúpri alvöru né ákærutón, heldur fremur næstum því í flimtingum. Þeir hafi heldur ekki verið sammála um þetta og ekki kallað þetta sömu nöfnum. Sigurður kveðst hafa minnst á þetta við aðila utan heimilisins en þeir viljað lítið úr þessu gera.Undir lokin, þegar hann hafi leyst forstöðumann af, segir Sigurður að afstaða sín og drengjanna hafi breyst, og þeir hafi farið að segja sér ýmsa hluti sem hafi verið nokkuð samhljóma. Það hafi orðið til þess, þegar dvölinni var lokið, að hann hafi gengið á fund yfirmanns barnaverndarsviðs Félagsmálastofnunar Reykjavíkur og greint frá því sem honum var sagt. Kveðst Sigurður hafa hvatt til þess að athugun færi fram og lagt til að heimilinu yrði breytt í skammtímaúrræði, þannig að börn væru ekki vistuð þarna lengi. Þetta hafi með öðru verið upphafið að því að hætt var að vista börn þarna á vegum Reykjavíkurborgar.
Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Erlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Erlent Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent Trump undirritaði samkomulag við Írani Erlent Fleiri fréttir Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Rubio óskar Íslendingum til hamingju með daginn Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Sjá meira
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent