Erlent

Chavez óttast um líf sitt

Getty Imgaes

Hugo Chavez forseti Venesúela óttast nú mjög um líf sitt og segir að CIA, bandaríska leyniþjónustan hafi lagt á ráðin með að myrða sig á laun. Chavez hefur stóraukið öryggisgæslu í kringum sig. Hann segir John Negroponte, sem áður var yfirmaður CIA og er nú aðstoðarutanríkisráðherra Condoleezu Rice vera atvinnumorðingja sem ekki muni una sér hvíldar fyrr en hann hafi ráðið sig af dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×