Erlent

Stendur við afsökunarbeiðni

Shinzo Abe forsætisráðherra japans. Sagnfræðingar telja að um 200.000 konur hafi starfað í vændishúsum á vegum hersisn á 4. og 5. áratugnum.
Shinzo Abe forsætisráðherra japans. Sagnfræðingar telja að um 200.000 konur hafi starfað í vændishúsum á vegum hersisn á 4. og 5. áratugnum. MYND/AP

Forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, mun standa við afsökunarbeiðni japanskra stjórnvalda á að asískar konur hafi verið þvingaðar til kynlífs með japönskum hermönnum fyrir áratugum síðan.

Einn ráðgjafa Abes greindi frá þessu í gær í kjölfar reiðiöldu sem ummæli forsætisráðherrans frá því í seinustu viku sköpuðu þar sem hann sagði ekkert sanna að konur hefðu verið neyddar til starfa á vændishúsum fyrir hermenn víða í Asíu.

Árið 1993 báðu japönsk stjórnvöld fórnarlömb kynlífsþrælkunarinnar afsökunar en afsökunarbeiðnin var ekki staðfest af þinginu eins og krafist var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×