Erlent

Gagnrýnir umdeilda heimild

Bresk þingnefnd telur valdheimild sem gerir yfirvöldum kleift að halda grunuðum hryðjuverkamönnum án ákæru stríða gegn mannréttindalögum í Evrópu.

Þessi heimild er háð endurnýjun löggjafans á hverju ári og var sett árið 2005. Hefur hún verið harðlega gagnrýnd af stjórnarandstöðuþingmönnum en innanríkisráðherra Bretlands, John Reid, segir hana nauðsynlega til að fást við grunaða hryðjuverkamenn sem ekki sé hægt að ákæra eða flytja úr landi.

Nefndin hvatti til að auðveldara yrði gert að ákæra með því til dæmis að leyfa að upptökur úr símhlerunum við réttarhöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×