Erlent

Átökin á Nørrebro

Óeirðaástand hefur verið á Nørre-bro í fjóra daga eftir að lögregla rýmdi Ungdomshuset 1. mars.

Ungmenni hafa haldið til í húsinu síðan 1980 og hefur það verið samkomustaður og vettvangur ýmiss konar menningarviðburða.

Efnt hefur verið til mótmæla og hafa óeirðaseggir kveikt í bílum og brotið rúður í húsum á svæðinu.

Trúfélag keypti húsið af Kaupmannahafnarborg árið 2001. Tilkynnt hefur verið að byggingin verði rifin í dag og á morgun.

Yfir sex hundruð hafa verið handtekin og þar af meira en tvö hundruð úrskurðuð í gæsluvarðhald.

Þetta eru mestu óeirðir í Danmörku síðan 1993 þegar lögregla skaut á hóp óeirðaseggja sem mótmæltu niðurstöðu þjóðar-atkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Tíu særðust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×