Kalt bað 15. febrúar 2007 17:30
Íbúar, í nágrenni nýju íþróttamiðstöðvarinnar í Mosfellsbæ, lentu í vandræðum með heita vatnið á heimilum sínum þegar vatni var hleypt á útisundlaug, og munu hafa velt fyrir sér hvort heitar sturtur heima við heyrðu nú sögunni til. Byggingafulltrúi bæjarins segir það af og frá. Hins vegar eigi eftir að ganga frá tengingum og frágangi á vatnslögnum við laugina. Á vestursvæði Mosfellsbæjar hefur veglegt íþróttamannvirki risið með almenningssundlaugum og íþróttasal. Innilaug og íþróttahús voru tekin í notkun síðasta haust og nú er beðið eftir að útilaugin komist í gagnið. Þegar prófað var að keyra dæa í hana vatni brá nágrönnunum þó í brún, því þrýstingur á heita vatninu féll. Að sögn deildarstjóra tæknideildar Mosfellsbæjar bárust ekki margar kvartanir en hann segir þá sem stóðu í sturtunni helst hafa orðið fyrir óþægindum. Að sögn byggingafulltrúa í bænum er ekki búið að gefa starfsleyfi á húsið af hálfu heilbrigðiseftilritsins og lokaúttekt hefur enn ekki farið fram. Hann segir að eftir sé að ganga frá ýmsum tæknilegum atriðum í byggingunni, þar á meðal tengingum og frágangi á vatnslögnum. Þessi vandræði með heita vatnið má rekja til þess að á sama tíma og vatni var dællt í laugina var kalt í veðri og álag á hitaveitukerfinu því mikið. Það náði einfaldlega ekki að dæla vatni á fullum krafti í íbúðahverfið og í laugina sjálfa. Til að bregðast við vandanum er ætlunin að notuð verði önnur veita fyrir íbúa í hverfinu og hefur framkvæmdum við þá tilfærslu verið flýtt. Stefnt er að því að útilaugin verði opnuð formlega sumardaginn fyrsta.
Mest lesið Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent Fleiri fréttir Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sjá meira