Platini ráðalaus þegar kemur að óeirðum í knattspyrnu 7. mars 2007 15:30 Platini hefur áhyggjur af auknu ofbeldi í tengslum við knattspyrnuleiki NordicPhotos/GettyImages
Michel Platini, nýkjörinn forseti evrópska knattspyrnusambandsins, segst ráðþrota þegar kemur að bulluskap og óeirðum sem verið hafa mjög áberandi í knattspyrnuheiminum á síðustu vikum. Hann segir málið að stórum hluta í höndum lögregluyfirvalda. Lætin í knattspyrnunni hafa verið óvenju áberandi undanfarið og skemmst er að minnast harmleiksins á leik Catania og Palermo á Sikiley þann 2. febrúar, þegar lögreglumaður lét lífið í átökum við óeirðaseggi. Þjálfari Sevilla slasaðist fyrir skömmu þegar flösku var kastað í höfuð hans í bikarleik á Spáni og þá hafa komið upp nokkur leiðindaatvik í franska boltanum - þar sem seinka þurfti leikjum og lögregla notaði táragas til að skakka leikinn. Platini segir að óeirðir hafi alltaf fundist í knattspyrnunni, en segir það erfitt mál viðureignar, því óljóst sé hver beri ábyrgð á að eiga við vandamálið. "Mér fannst andrúmsloftið í knattspyrnunni vera orðið mjög jákvætt fyrir 20 árum, en svo virðist ekki vera lengur. Allir bera einhverja ábyrgð á þessu, en svo virðist sem fótboltinn í dag sé orðinn mikilvægari en lífið sjálft. Hvernig á maður að eiga við það? Ég veit það ekki. Það hefur alltaf átt sér stað ofbeldi í einhverjum mæli í fótboltanum, en af hverju er það að aukast núna? Og hver á að eiga við það? Alþjóða knattspyrnusambandið og það evrópska eiga bara við þessa hluti þegar um er að ræða keppnir á þeirra vegum. Það sem gerist úti á götunum, hlýtur hinsvegar að teljast mál lögregluyfirvalda - hvernig eiga knattspyrnufélög að ráða við það sem þar gerist?" sagði Platini í samtali við L´Equipe.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Fótbolti „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Enski boltinn Fleiri fréttir Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Besta spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Ronaldo gæti spilað með syni sínum Baulað á skúrk síðustu viku en Real heldur í vonina Ótrúleg endurkoma og Inter gæti náð tvennunni Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Ísland niður um sæti en berst við tvö af þremur bestu í heimi Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Neymar æfur: „Enginn maður þolir þetta“ Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Spjótin standa að Jóni Degi og Freyr stígur inn á milli Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Fiorentina fjarlægist fallsætin Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjá meira