Innlent

Laun seðlabankastjóra hækka um 200 þúsund á mánuði

Bankaráð Seðlabankans ákvað á fundi sínum á fimmtudag að hækka laun bankastjóranna um 200 þúsund krónur á mánuði og verða þau fjórtán hundruð þúsund krónur.

Fréttablaðið greinir frá því að laun þeirra hafi síðast verið hækkuð um 27 prósent fyrir tæpum tveimur árum. Helgi S. Guðmundsson, formaður bankaráðs, vill ekki gefa blaðinu neinar skýringar á þessu nema að formlegar spurningar berist honum með pósti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×