Myrti elskhuga fyrrverandi konu sinnar og svipti sig svo lífi 29. júlí 2007 18:30
Þrjátíu og átta ára gamall maður skaut þrjátíu og fimm ára gamlan mann til bana með riffli á Sæbraut í Reykjavík skömmu fyrir hádegi. Maðurinn náði að forða sér særður í sendibíl sem átti leið hjá árásarstaðnum en lést af sárum sínum skömmu síðar. Morðinginn svifti sig lífi á Þingvöllum fljótlega eftir voðaverkið. Klukkan átján mínútur fyrir klukkan tvö í dag barst lögreglunni tilkyning um að maður hefði orðið fyrir skotárás á Sæbrautinni og síðar kom í ljós að hann hafði verið skotinn í brjóstið. Hörður Jóhannesson aðstoðarlögreglustjóri segir að maðurinn hafi flúið særður upp í sendiferðabíl sem átti leið hjá. Hann hafi svo látist af sárum sínum á bráðamóttöku Landsspítalans í Fossvogi um klukkan eitt. Bíll árásarmannsins fannst um klukkan eitt í Almannagjá á Þingvöllum. Árásarmaðurinn var í bílnum og hafði svift sig lífi. Hann skildi eftir bréf til lögreglunnar þar sem hann greindi frá málavöxtum. Hörður segir að riffill hafi fundist í bílnum sem reyndist vera árásarvopnið. Lögreglan vill ekki upplýsa nákvæmlega hvað stóði í bréfi árásarmannsins til hennar, en bréfið hafi staðfest að maðurinn hefði fyrr um daginn skotið manninn við Sæbraut. Riffillinn sem fannst í bifreið árásarmannsins er tuttugu og tveggja kalibera tékkneskur riffill, og allt bendir til að hann hafi bæði verið notaður við morðið og sjálfsvígið. Friðrik Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir að árásarmaðurinn hafi haft byssuna til umráða en ekki liggur fyrir hvort hún var skráð á hann. Margt bendir til að árásarmaðurinn hafi elt manninn sem hann særði svo banvænu skotsári. Hörður Jóhannesson segir að svo líti út fyrir að maðurinn sem var myrtur hafi verið að skipta um hjólbarða þegar hann varð fyrir árásinni. Hann segir ekki hægt að segja til um það á þessari stundu hvort árásarmaðurinn hafi elt hinn myrta áður en til árásarinnar kom. Þeir hafi alla vega verið á sama stað á sama tíma þegar árásin var gerð.
Mest lesið Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Veður D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Innlent Frakkar fjölga kjarnavopnum Erlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Fleiri fréttir Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Sjá meira