Sturla vill gefa Kristjáni svigrúm vegna Grímseyjarferju 15. ágúst 2007 18:16 MYND/Teitur
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrrverandi samgönguráðherra, ætlar ekki að tjá sig um svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar sem birt var í gær. Sturla segir eðlilegt að núverandi samgönguráðherra, Kristján L. Möller, fái svigrúm til að vinna úr málinu. Í skýrslunni eru gerðar margvíslegar athugasemdir við það hvernig staðið var að kaupum og endurbótum á nýrru Grímseyjarferju og fær samgönguráðuneytið sinn skerf af gagnrýninni. Í dag barst síðan yfirlýsing frá ráðuneytisstjóra samgönguráðuneytisins þar sem fram kemur að athugasemdir Ríkisendurskoðunar séu litnar mjög alvarlegum augum í ráðuneytinu. „Ljóst er að orðið hefur ákveðið brot á skýrum verklagsreglum ráðuneytisins sem kveða á um að gera skuli vandaða verkefnaáætlun sem innihaldi m.a. verklýsingu, tíma- og kostnaðaráætlun. Jafnframt ber verkefnisstjóra að upplýsa ráðuneytisstjóra um gang mála og fá samþykki fyrir verkefnaáætlun. Við framkvæmd þessa máls var þessum verklagsreglum ekki fylgt. Tekið verður á því með viðeigandi hætti og í samræmi við góða stjórnsýslu," segir í yfirlýsingunni. Sturla, sem var samgönguráðherra á því tímabili sem skýrsla Ríkisendurskoðunar nær til sagði hins vegar í samtali við fréttastofu Stöðvar 2, að hann ætlaði sér ekki að tjá sig um málið. „Ég hef ekki talið rétt að tjá mig um skýrslu Ríkisendurskoðunar að svo stöddu. Ég tel eðlilegt að núverandi samgönguráðherra hafi svigrúm til þess að vinna að málinu án þess að ég sé að tjá mig."
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Hitnar undir feldi Péturs Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fleiri fréttir Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira