Fótbolti

CSKA Sofia fær metsekt í Búlgaríu

Aron Örn Þórarinsson skrifar

CSKA Sofia frá Búlgaríu hefur verið dæmt til að borga metsekt vegna óláta stuðningsmanna liðsins síðastliðinn laugardag í leik gegn Litex. Félagið þarf að borga 1,7 milljón krónur í sekt ásamt því að þurfa að spila næstu tvo heimaleiki fyrir luktum dyrum.

Ástæðan fyrir sektinni er sú að stuðningsmennirnir voru ósáttir við 1-1 jafntefli í leiknum og hentu öllu lauslega inn á völlinn þar sem einn lögreglumaður slasaðist. Leikmenn liðsins höguðu sér ekki betur og fóru þrjú rauð spjöld á loft.

Angel Bonchev, forseti Litex, var sektaður um 140 þúsund krónur fyrir að reyna að slá til dómara leiksins á leið til búningsklefa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×