Erlent

Stolið Da Vinci málverk fannst við húsleit

Hertoginn af Buccleuch er ánægður með fundinn.
Hertoginn af Buccleuch er ánægður með fundinn. Mynd: Getty

30 milljón punda málverk eftir Leonardo Da Vinci, Madonna with the Yarnwinder, fannst í gær eftir húsleit í Glasgow. Málverksins hafði verið saknað í meira en fjögur ár en því var stolið úr Drumlanrig kastala hertogans af Buccleuch.

Þrír Englendingar og einn Skoti voru handteknir eftir að málverkið fannst, grunaðir um að vera þjófarnir sem lögreglan hefur leitað að um árabil.

Lögreglan komst á sporið þegar hún náði að hlera samskipti manna sem ræddu mögulega sölu á verkinu. Hún lét til skarar skríða og fann málverkið skömmu síðar.

Til marks um mikilvægi fundarins má nefna að bandaríska alríkislögreglan setti málverkið á topp tíu lista sinn yfir eftirsóttustu stolnu listaverk samtímans.

Listaverkið hefur verið í eigu Buccleuch fjölskyldunar í um 200 ár. Fjölskyldan hafði undanfarin ár haft það til sýnis í kastala sínum, en ekki er vitað hvort hún treysti sér til þess nú þegar þau endurheimta verkið aftur úr klóm þjófanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×