Ógnaði foreldrum sínum með hnífi 28. júní 2007 00:15 Oft kemur til átaka milli unglinga og foreldra en sjaldgæft er að vopnum sé beitt. MYND/Anton „
Þetta er ekkert einsdæmi en sem betur fer kemur það ekki oft fyrir að við þurfum að yfirbuga ungmenni í heimahúsum,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sextán ára piltur var handtekinn á heimili sínu í Breiðholti aðfaranótt þriðjudags þar sem hann gekk berserksgang og ógnaði foreldrum sínum með eldhúshnífi. Foreldrarnir kölluðu eftir aðstoð laust fyrir miðnætti og voru lögreglumenn frá stoðdeild ríkislögreglustjóra sendir á vettvang. Þeir þurftu að beita varnarúða til að yfirbuga piltinn sem var undir áhrifum fíkniefna. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu. Að sögn Geirs Jóns er ekki ólíklegt að pilturinn verði ákærður. „Þetta er mjög alvarlegt mál enda hefðu menn verið í mikilli hættu hefði pilturinn beitt hnífnum,“ segir Geir Jón. Málið heyrir undir barnaverndaryfirvöld vegna ungs aldurs piltsins. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir ekki óalgengt að til átaka komi milli unglinga og foreldra. Hins vegar sé afar sjaldgæft að gripið sé til vopna. „Við heyrum af svona málum af og til en ekki nema svona einu sinni á ári. Þetta eru alvarlegir atburðir sem benda til þess að eitthvað sé að og kalla á ákveðin viðbrögð frá barnaverndaryfirvöldum,“ segir Bragi. Oftast koma vímuefni við sögu í málum sem þessu.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira