Fótbolti

Liverpool á eftir Brassa

Cicinho virðist vera á förum frá Real Madrid
Cicinho virðist vera á förum frá Real Madrid
Spænskir fjölmiðlar segja frá því í dag að Liverpool hafi bæst í kapphlaupið um að klófesta brasilíska bakvörðinn Cicinho.

Áður hefur verið sagt frá áhuga Roma á bakverðinum en hann virðist ekki vera í framtíðarplönum Bernd Schuster, þjálfara Real.

Cicinho er 27 ára gamall og fæst fyrir tæpar sjö milljónir punda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×