Steggjunin fór úr böndunum 19. febrúar 2007 19:30
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á þrítugaldri í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið konu í andlitið með glerflösku þannig að hún hlut skurð á enni. Janframt var hann dæmdur til að greiða henni hundrað þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn var sakfelldur meðal annars með vísan til Mannhelgisbálks Jónsbókar frá árinu 1281. Fram kemur í dómnum að lögregla hafi verið kölluð að veitingastaðnum í júní árið 2005 vegna manns sem gengið hefði berserksgang á veitingastaðnum. Þegar lögregla hugðist hafa afskipti af manninum, sem ákærður var, varð hann æstur og réðst að einum lögreglumannanna. Hann var því handtekinn en linnti ekki látum fyrr en komið var á lögreglustöð. Fram kom í skýrslutöku af manninum daginn eftir að hann myndi ekki eftir atburðunum sökum ölvunar en hann bar því við að vinir hans hefðu verið að steggja hann yfir daginn. Í framburði vitna kom fram að maðurinn hefði byrjað að hrækja á gólf veitingastaðarins og við það hefði annar gestur á staðnum gert athugasemdir. Þá hefði ákærði tekið að grýta hann með bjórflöskum en starfsstúlka á veitingastaðnum varð fyrir einni þeirra. Ákærði neitaði hins vegar sök en viðurkenndi að hafa hent flösku í vegg á veitingastaðnum. Dómnum þótti framburður vitna hins vegar staðfesta hið gagnstæða og því yrði dregin sú ályktun að starfsstúlkan hefði verið stödd á milli ákærða og mannsins sem kvartaði undan háttalagi hans. Ekki liggi þó fyrir að flaskan hafi brotnað á stúlkunni. „Með hliðsjón af dómi Hæstaréttar í dómasafni 1926, bls. 392 og með vísan til Mannhelgisbálks Jónsbókar frá 1281, í kap. 13 um váðaverk, sem enn er í gildi, verður ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás," segir í dómi héraðsdóms. Enn fremur kemur fram í dómnum að maðurinn hafi ekki áður komist í kast við lögin en að háttsemi hans hafi verið vítaverð. Hins vegar hafi afleiðingar verknaðar hans ekki verið mjög alvarlegar. Þykir því eins mánaðar fangelsi sem er skilorðsbundið til tveggja ára hæfileg refsing Stúlkan sem varð fyrir flöskunni fór fram á 630 þúsund krónur í miskabætur en dómnum þótti sú krafa ekki studd með neinum gögnum. Hins vegar var ákveðið á grundvelli skaðabótalaga og fyrri dóma að ákvarða henni hundrað þúsund krónur í miskabætur.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira