Innlent

Höfnuðu beiðni Greenpeace um sýnatöku

Fyrsti hvalinn sem veiddur er í atvinnuskyni í 17 ár.
Fyrsti hvalinn sem veiddur er í atvinnuskyni í 17 ár. Mynd/vilhelm

Greenpeace-samtökin vilja rannsaka magn eiturefna í hvalaafurðum. Beiðni þeirra til Sorpurðunar Vesturlands um sýnatöku á urðunarsvæði fyrirtækisins í Fíflholtum á Mýrum var hafnað í síðustu viku. Sorpurðun Vesturlands er í eigu sveitarfélaganna á Vesturlandi.

Þetta kemur á fréttavefnum Skessuhorn. Þar segir jafnframt að á Mýrum hafi um 179 tonn af þeim sjö langreyðum sem veiddar voru á síðasta ári verið urðuð.

Greenpeace-menn segja að sýni sem tekin voru úr hrefnu í Noregi sýni hátt hlutfall eiturefna. Því eigi að meðhöndla hvalaúrgang eins og eiturefnaúrgang. Þeir telja að niðurstöður eiturefnamælinga hefðu átt að liggja fyrir áður en afurðirnar voru urðaðar.

Í svari sem Guðbrandur Brynjúlfsson, formaður stjórnar Sorpurðunar Vesturlands, sendi Greenpeace-samtökunum er beiðninni hafnað. Þar kemur fram að engum sé hleypt inn á urðunarsvæðið til sýnatöku nema þeim sem til þess hafi verið ráðinn og samþykktur af Umhverfisstofnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×