Innlent

105 teknir fyrir hraðakstur í borginni um helgina

MYND/Hilmar

Hundrað og fimm ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá henni. Allmargir þeirra óku á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða en lögreglan stöðvaði slíkan glannaakstur í Norðurfelli, Stekkjarbakka, á Hringbraut, Eiðisgranda og Hafnarfjarðarvegi.

Fjórum öðrum ökumönnum var veitt eftirför en þeir óku líka á ofsahraða. Auk þessa voru 55 umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, en í tíu þeirra hafði tjónvaldur flúið af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×