Þvílíkt rusl 29. mars 2007 12:25 NordicPhotos/GettyImages
Frammistaða enska landsliðsins gegn Andorra í gær varð ekki til þess að styrkja stöðu Steve McClaren landsliðsþjálfara í augum fjölmiðla og stuðningsmanna enska landsliðsins. McClaren gekk af blaðamannafundi eftir leikinn í gær og stuðningsmenn enska liðsins sungu "þið eigið ekki skilið að klæðast búningnum" og "þvílíkt rusl" til að lýsa skoðunum sínum á lélegri spilamennsku liðsins. Enska liðið vann leikinn 3-0 og komu öll mörkin í síðari hálfleik. Þeir sem séð hafa leiki með smáliði Andorra vita að liðið á að heita mörgum klössum fyrir neðan það enska að styrkleika, en þó virkuðu stjörnur enska liðsins ekki sérlega sannfærandi í gær frekar en í undanförnum leikjum. "Ég hef engar áhyggjur af liðinu og það er það sem skiptir máli. Þið getið skrifað hvað sem þið viljið skrifa, en ég segi ekkert meira um leikinn," sagði Steve McClaren og stökk út af blaðamannfundi. Hann sagðist ánægður með að liðið næði sigri í leiknum eins og til stóð. Breska blaðið The Sun var ekki að skafa af því frekar en fyrri daginn og vitnaði í Steve McClaren á blaðamannafundinum. Þar sagði þjálfarinn að blaðamenn mættu skrifa það sem þeir vildu eftir að Englendingar unnu liðið í 163. sæti FIFA-listans 3-0. "Þú sagðir að við mættum skrifa það sem við vildum. Allt í góðu. Þetta var rusl," sagði í blaðinu. Þar stóð einnig að ensku stuðningsmennirnir hefðu kallað á að David Beckham fengi sæti í enska landsliðinu á ný og einhverjir ensku áhorfendanna sungu "þið eruð Skotar í dulargervi."
Mest lesið Féll næstum því í Harvard vegna höfuðverkjanna Fótbolti PSG verðskuldaður sigurvegari Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Ísak í einkaflugi út að semja við erkifjendurna Fótbolti Leikdagur í Munchen: Gummi Ben og Kjartan hita upp fyrir stærsta leik ársins Fótbolti Þór dregur liðið úr keppni í efstu deild Körfubolti Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Enski boltinn Dagur Dan kallaður inn í íslenska landsliðið Fótbolti Leiknir lætur þjálfarann fara Fótbolti Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Enski boltinn „Þetta er alvöru pakki og alvöru djobb“ Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal í viðræðum við Leipzig vegna Šeško Mörkin sem komu PSG yfir Í beinni: Paris Saint-Germain - Inter Milan | Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu Kristian Nökkvi kominn með nýjan þjálfara Lið Loga fer illa af stað Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Arnór og Arnór meiddir rétt fyrir landsleikjahlé Ísak í einkaflugi út að semja við erkifjendurna Leiknir lætur þjálfarann fara Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Mexíkó hyggst halda HM 2031 með Bandaríkjunum Fyrrum forseti Inter látinn og liðið mun leika með sorgarbönd Dagur Dan kallaður inn í íslenska landsliðið Leikdagur í Munchen: Gummi Ben og Kjartan hita upp fyrir stærsta leik ársins Féll næstum því í Harvard vegna höfuðverkjanna Mikil öryggisgæsla í París þótt að úrslitaleikurinn fari fram í München Ancelotti: Brasilíska landsliðið mitt mun spila eins og Real Madrid Njarðvík og ÍR upp í efstu sætin í Lengjudeildinni „Við í rauninni töpum tveimur stigum“ Beever-Jones með þrennu í fyrsta landsleiknum sínum á Wembley Stelpurnar hennar Betu réðu ekki við heimsmeistarana í lokin „Gengur kannski illa að vinna leiki en við vinnum bara réttu leikina“ Fyrrum aðstoðarmaður Klopp aðstoðar Guardiola á næsta tímabili Harder tryggði Dönum dýrmætan sigur Sjáðu frábæra afgreiðslu Sveindísar Jane Ungu strákarnir björguðu andliti Man United í Hong Kong Uppgjörið: Noregur - Ísland 1-1 | Dýrt sjálfsmark kostaði sigurinn „Auðveld ákvörðun“ þegar hann heyrði af áhuga Liverpool Fjórir miðverðir í íslensku vörninni á Lerkendal Bindur vonir við nýja manninn: „Ekki með svona leikmann í liðinu í dag“ Sjá meira