Grétar Rafn með nýtt tilboð frá AZ 15. júní 2007 00:01 Grétar segir að eitthvað mikið þurfi að gerast til að hann sannfærist um að yfirgefa AZ Alkmaar. MYND/Anton
Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson hefur síðustu daga verið orðaður við Middlesbrough og Newcastle. Fjölmiðlar bæði í Hollandi og Englandi hafa gefið í skyn að Grétar sé mjög spenntur fyrir því að fara í ensku úrvalsdeildina. Þó segir hann sjálfur að hann sé afar sáttur hjá AZ Alkmaar í Hollandi. „Ég hef það mjög gott í Alkmaar. Félagið var að bjóða mér nýjan fimm ára samning," sagði Grétar Rafn, sem er þegar samningsbundinn liðinu til 2011. Nýr samningur myndi fela í sér að hann yrði bundinn liðinu til 2012 og fengi þar að auki myndarlega launahækkun. „Í AZ er ég í góðu liði sem hefur náð mjög góðum árangri. Ég er með mjög góðan þjálfara og tek stöðugum framförum þar. Í vetur unnum við Sevilla og slógum út bæði Fenerbahce og Newcastle," sagði Grétar en þjálfari hans hjá AZ er Louis van Gaal. „Ég hef þó mín markmið sem ég ætla mér að ná. Ég verð bara að sjá til hvað gerist." Hann segir þó að það sé ljóst að það þyrfti eitthvað mikið til að hann færi að söðla um. „Ég færi ekki að rífa mig upp með rótum bara til þess eins að sitja á bekknum í einhverju liði. Það er spennandi að ensk úrvalsdeildarfélög sýni mér áhuga en það eitt er ekki nóg. En þetta eru allt vangaveltur eins og er." Hann er nú staddur á Siglufirði þar sem hann tekur lífinu með ró í faðmi fjölskyldunnar og vina. Grétar segist ætla að nota tímann vel til að taka því rólega og taka sér algjört frá frá knattspyrnu. „Það hefur verið mikið að gerast og voru síðustu vikurnar í Hollandi mikil vonbrigði fyrir okkur. Ekki batnaði það svo með landsliðinu," sagði hann. AZ Alkmaar missti naumlega af hollenska meistaratitlinum sem og meistaradeildarsæti. Liðið tapaði þar að auki í úrslitum bikarkeppninnar. „Þetta er harður heimur og það fylgja þessu oft töp. Ég ætla því ekkert að pæla í þessum málum fyrr en ég mæti aftur í vinnuna," sagði Grétar Rafn. eirikur@frettabladid.is
Fótbolti Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Sjá meira