Tóku tvo þýska gísla af lífi Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 21. júlí 2007 10:19
Talibanar í Afghanistan greindu frá því í morgun að þeir hefðu tekið tvo þýska gísla af lífi úr hópi Þjóðverja og Suður-Kóreumanna sem þeir rændu á fimmtudag. Mannræningjarnir hótuðu því að taka hina gíslana af lífi fyrir hádegi í dag nema stjórnvöld í Suður-Kóreu og Þýskalandi fækki í herliði sínu í Afganistan. Tölum um fjölda gíslanna ber ekki saman. Um er að ræða 18 Suður-Kóreumenn og að minnsta kosti fimm Þjóðverja. Í hópnum eru að minnsta kosti 15 konur. Gíslunum var rænt úr rútu þar sem þeir ferðuðust um þjóðveg frá Kabul til Kandahar í suðurhluta landsins. Talibanarnir kröfðust þess að Suður Kórea kallaði 200 hermenn til baka fyrir hádegi í dag, að öðrum kosti myndu þeir taka alla gíslana af lífi. Talsmaður mannræningjanna sagði að þýsku gíslarnir tveir hefðu verið teknir af lífi þar sem ekki hefði orðið við kröfum þeirra um að senda þrjú þúsund þýska hermenn frá Afganistan. Hvorki þýskum, né afgönskum yfirvöldum hafði borist staðfesting á að gíslarnir tveir hefðu verið teknir af lífi. Utanríkisráðherra Suður Kóreu sagði að ekki hefði borist formleg ósk til stjórnvalda frá öfgamönnunum. Stjórnvöld í Seoul segjast reiðubúin til viðræðna við talibanana til að tryggja lausn fólksins. Roh Moo-hyun forseti Suður Kóreu hét þess í dag að gera allt sem í hans valdi stendur til að gíslunum verði sleppt sem fyrst. Á síðasta ári tilkynntu stjórnvöld í Seoul að hermenn þeirra í Afghanistan yrðu fluttir heim fyrir lok þessa árs.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Sá sem skotinn var til bana hafi áður reynt að nálgast Hvíta húsið Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Sjá meira