Erlent

Rútan steyptist fram af afrein

Rútan fór í gegnum vegrið áður en hún steyptist niður á hraðbraut fyrir neðan þar sem hún lenti á hliðinni.
Rútan fór í gegnum vegrið áður en hún steyptist niður á hraðbraut fyrir neðan þar sem hún lenti á hliðinni. MYND/AP

Sex manns létust í gærmorgun í Atlanta þegar rúta með körfuboltalið háskólanema frá Ohio í Bandaríkjunum innanborðs fór í gegnum vegrið á afrein, steyptist fram af og lenti á fjölfarinni hraðbraut fyrir neðan.

Fjórir nemendur voru meðal hinna látnu ásamt bílstjóra rútunnar og eiginkonu hans. Alls hlutu 29 farþegar meiðsli í slysinu, þar af eru þrír lífshættulega slasaðir.

Slökkviliðsmenn þurftu að draga farþegana út um glugga á þaki rútunnar, sem lá á hliðinni á veginum. Þegar rútan fór fram af lenti hún framan á pallbíl á hraðbrautinni og sagðist bílstjóri pallbílsins hafa haldið að steypuplata væri að falla ofan á sig. „Ég sá ekki að þetta var rúta. Ég held að þegar ég sá þetta koma hafi ég lokað augunum og stigið á bensínngjöfina.“ Framhluti pallbílsins laskaðist en bílstjórinn slapp án meiðsla.

Að sögn talsmanns lögreglunnar er talið líklegt að orsök slyssins hafi verið sú að ökumaður rútunnar hafi ruglast og haldið að afreinin væri akrein. Ekki hafði enn birt af degi þegar slysið varð.

Körfuboltaliðið, sem kom frá Bluffton-háskóla í Ohio, var á leið til Flórída þar sem það átti að keppa um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×