Erlent

Mikið ber á milli í Kosovo

Martti Ahtisaari
Martti Ahtisaari

Martti Ahtisaari, fyrrverandi Finnlandsforseti, segir að serbnesku og albönsku samningafulltrúarnir frá Kosovo séu algerlega á öndverðum meiði um tillögur Sameinuðu þjóðanna um framtíð héraðsins. Ahtisaari, sem samdi tillögurnar, hefur átt fundi með fulltrúum beggja þjóðarbrotanna og sagðist nú ætla að skoða athugasemdirnar og „sjá til hvers konar breytingar við gætum gert“.

Samkvæmt tillögunum fengi Kosovo veruleg sjálfsstjórnarréttindi án þess þó að hafa formlegt sjálfstæði, auk þess sem serbneski minnihlutinn fengi að hafa náin tengsl við Serbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×