Innlent

Kolefnisjöfnun fyrir flugferðir

Þeir sem panta flug með Iceland Express geta nú valið hvort þeir láta kolefnisjafna ferðina með því að kaupa tré sem Kolviður plantar.
Þeir sem panta flug með Iceland Express geta nú valið hvort þeir láta kolefnisjafna ferðina með því að kaupa tré sem Kolviður plantar. MYND/Teitur

Iceland Express hefur gert samkomulag við Kolvið um að farþegar félagsins geti kolefnisjafnað ferðalög með flugfélaginu um leið og flugmiðinn er pantaður. Þjónustan verður í boði frá og með deginum í dag.

„Það er okkur sönn ánægja að aðstoða farþega okkar við að kolefnisjafna sín ferðalög með Iceland Express,“ segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, og bendir á að mikil vitundarvakning hafi orðið í þessum efnum undanfarið.

Farþegi sem vill kolefnisjafna ferð sína greiðir á bilinu 172 til 346 krónur fyrir hverja flugferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×