Erlent

Heitir efldri friðargæsluaðstoð

Abe og Scheffer „Söguleg heimsókn“ að mati framkvæmdastjóra NATO.
Abe og Scheffer „Söguleg heimsókn“ að mati framkvæmdastjóra NATO. mynd/ap

Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, hét því í gær að Japanar myndu efla stuðning sinn við friðargæsluverkefni NATO í Afganistan með aukaframlagi til mannúðar- og þróunaraðstoðar, en ekki með því að leggja til hermenn.

Abe heimsótti í gær höfuðstöðvar NATO í Brussel, fyrstur japanskra ríkisstjórnarleiðtoga. Heimsóknin endurspeglar áherslu stjórnar Abes á að styrkja tengsl Japans við bandalagið, sem er liður í viðleitni hennar til að gera Japan meira gildandi á alþjóðasviðinu.

„Þetta er söguleg heimsókn,“ sagði Jaap de Hopp Scheffer, framkvæmdastjóri NATO. „Japan og NATO-bandamennirnir standa frammi fyrir sömu ógnum. Það er ekki hægt að líta á öryggismál bara í heimshlutabundnu samhengi; ógnirnar eru hnattræns eðlis.“

Abe, sem tók við embætti í september, braut hefð í stjórnmálum Japans eftir stríð með því að halda til Evrópu áður en hann heimsækir Bandaríkin. Eitt aðalerindi hans er að afla stuðnings við að Japanar fái fast sæti með neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Heima við vill hann breyta stjórnarskránni þannig að aflétt verði að hluta þeim miklu hömlum sem í henni er að finna á uppbyggingu og beitingu japanska hersins, með það fyrir augum að gera Japönum kleift að taka virkari þátt í fjölþjóðlegum friðargæsluverkefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×