Erlent

Ekvador kvartar við Alþjóðaviðskiptastofnunina

MYND/Getty
Ekvador hefur lagt fram kvörtun á hendur Evrópusambandinu hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni vegna tolla á bananainnflutningi. Ekvador hefur löngum sagt að innflutningstollar Evrópusambandsins, sem síðan í janúar nema tæpum 16 þúsund krónum á tonnið af banönum, séu allt of háir og bitni á framleiðslu í landinu.

Þessir tollar voru settir á til þess að leysa af hólmi flókið kerfi kvóta, tolla og gjalda, sem var arfleifð "bananastríðanna" svokölluðu á tíunda áratug síðustu aldar. Alþjóðaviðskiptastofnunin sló tvisvar niður kröfur Evrópusambandsins sem vildi setja enn hærri tolla á banana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×