Offita barna mun tvöfaldast á næstu fimm árum 7. mars 2006 13:00 MYND/AP
Einn gosdrykkur á dag getur valdið sjö kílóa þyngdaraukningu á einu ári hjá börnum. Offita barna mun tvöfaldast í Evrópu á næstu fimm árum ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða. Samkvæmt niðurstöðum viðamikillar athugunar alþjóðlegra samtaka gegn offitu, stefnir allt í að tuttugu og sex MILLJÓNIR barna í löndum Evrópusambandsins verði of þung árið 2010 og þar af muni tæplega sex og half milljón þjást af offitu. Það er helmingi meira en nú. Þá muni hlutfall offitu meðal barna hækka um ellefu prósent í Mið-Austurlöndum á sama tímabili og fimmtán prósent í Suður-Ameríku. Í Asíu, sem er sú heimsálfa þar sem offita er nú langminnst meðal barna, fer ástandið líka versnandi og þar mun offita barna þrefaldast á næstu fimm árunum samkvæmt úttektinni. Rannsakendur segja niðurstöðurnar varlega áætlaðar og ástandið gæti þess vegna átt eftir að verða verra en gert er ráð fyrir í skýrslunni. Ný bandarísk rannsókn bendir til þess að ein leið til að sporna við þessari þróun sé að koma í veg fyrir neyslu sykraðra drykkja. Ein hálfs lítra flaska af gosdrykk eða sykruðu djúsi á dag, getur leitt til allt að sjö kílóa þyngdaraukningar á einu ári hjá börnum samkvæmt rannsókninni. Rannsóknin náði til hóps unglinga, sem skipt var í tvo hópa. Annar hópurinn fékk ströng fyrirmæli um að forðast sykraða drykki á meðan á rannsókninni stóð, en hinn hópurinn hélt neyslumynstri sínu óbreyttu. Í ljós kom að hópurinn sem dró úr sykurdrykkjunni grenntist verulega og áhrifin voru mest hjá þeim þyngstu. Þannig virðist það geta skilað börnum sem eru allt of þung sérstaklega miklum árangri að draga úr neyslu gosdrykkja.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira