Engin svör enn frá El Salvador vegna morðsins á Jóni Þór Ólafssyni 15. febrúar 2006 18:37
Íslensk lögregluyfirvöld hafa engin svör fengið frá El Salvador, um það hvernig rannsókninni á morðinu á Jóni Þór Ólafssyni miðar. Jón Þór var myrtur á sunnudagsmorgun, ásamt innfæddri konu, en þau voru bæði skotin með sjálfvirkri byssu, -hann að minnsta kosti tuttugu skotum. Ekkert bendir til þess að þeim hafi verið rænt segja þarlend yfirvöld hjá glæpadeild lögreglu í borginni segir að líkin hafi fundist af tilviljun á sunnudag við þjóðveginn frá San Salvador til Santa Ana um fjörutíu kílómetra frá borginni. Ekki sé víst að þau hafi verið myrt á þessum sama stað. Líkin fundust á sunnudag en ekki var vitað að þetta var Jón Þór fyrr en í gær. Jón Þór var verkfræðingur og starfaði í San Salvador við gerð jarðvarmaorkuvers á vegum fyrirtækisins Enex. Að jafnaði hafa tveir til fjórir íslendingar verið við störf á vegum fyrirtækisins frá því í fyrravor. Samkvæmt tilkynningu frá aðstandendum hófst leit að Jóni á sunnudag eftir að samstarfsmenn hans höfðu gert lögreglu viðvart. Jón Þór var þrjátíu og sjö ára gamall. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og tvö ung börn á skólaaldri úr fyrri sambúð. Lárus Elíasson, framkvæmdastjóri ENEX segir að Jón Þór hafi verið ásamt öðrum íslendingi í El Salvador en báðir voru staðsettir í San Salvador. Jón Þór hafi verið saknað síðan á laugardag. Lárus segir að starfsmenn Enex séu harmi slegnir yfir þessum atburði. Glæpir séu tíiðir í El Salvador en allt hafi veirð reynt að gera til að auka öryggi íslensku starfsmannnana. Tildrög þess að Jón Þór fannst látinn eru ókunn en alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra og lögregluyfirvöld í El Salvador fara með rannsókn málsins. Lík Jóns Þórs verður flutt heim á næstu dögum, - um leið og lögreglan ytra gefur til þess leyfi.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Innlent Fleiri fréttir Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Sjá meira