Mótmælendur láta í sér heyra í Washington 20. apríl 2006 18:45
Falun Gong-liðar komust í dag nær Kínaforseta í Bandaríkjunum heldur en þegar forseti landsins kom til Íslands árið 2002. Einn mótmælenda náði að setja fund forseta Kína og Bandaríkjanna úr skorðum um stund í Washington í dag. Heimsókn Hu Jintaos til Bandaríkjanna er sú fyrsta síðan hann varð þjóðarleiðtogi. En þó að viðhöfnin hafi verið mikil er heimsóknin ekki opinber og því hafa ekki verið skipulagðir gala kvöldverðir og leiðtogunum báðum óhætt að taka af sér bindið þegar kvölda tekur. Á fundi með blaðamönnum hvatti Bush Hu Jintao meðal annars til að nota áhrif sín í langvinnri kjarnorkudeilu við Norður Kóreu. En Kínaforsti var ekki nema rétt nýbyrjaður að tæpa á kjarnorkumálunum, þegar miðaldra kona úr röðum Falun Gong setti þessa formlegu athöfn alveg úr skorðum um stund með því að kalla hátt að Falun Gong samtökin væru að vinna gott verk og rétt væri að hætta að ofsækja félagsmenn í Kína. Hún sagði tíma Hu Jintao liðinn þar sem illmenni féllu frá fyrr en aðrir. Þýðingar á orðum Hu Jintaos sem ómuðu í hátölurunum fóru að mestu framhjá viðstöddum, því að athyglin var öll á öskrum konunnar. Síðan leið og beið og það var ekki fyrr en eftir drjúga stund að öryggisverðirnir námu konuna loks á brott. Þessi vinnubrögð standast engan samanburð við öryggisgæsluna hér á landi þegar Kínaforseti heimsótti Ísland árið 2002. Þá voru lögreglumenn heldur snarari í viðbrögðum þegar mótmælendur úr röðum Falun Gong öskruðu að Jiang Zemin.
Erlent Fréttir Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Fleiri fréttir Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Sjá meira