Rússar réðu tilræðismann páfa 2. mars 2006 19:45
Ítölsk þingnefnd, sem hefur rannsakað tilræðið við Jóhannes Pál páfa annan árið 1981, segir óyggjandi sannanir fyrir því að ráðamenn í Moskvu hafi staðið fyrir tilræðinu. Jóhannes Páll páfi var skotinn á Péturstorginu í Róm þrettánda maí árið 1981. Nokkrum mínútum síðar var Tyrkinn Mehmet Ali Agca handtekinn og síðar sakfelldur fyrir tilræðið við páfa. Níundi áratugur síðustu aldar var umbrotatími í heimalandi páfa, Póllandi. Sagnfræðingar segja aðgerðir verkalýðsfélagsins Samstöðu þar í landi hafa hjálpað til við að flýta hruni kommúnismans í Austur-Evrópu. Páfi var dyggur stuðningsmaður félagsins og það mun hafa verið þyrnir í augum ráðamanna í Sovétríkjunum. Árið 1986 var réttað yfir þremur Tyrkjum og þremur Búlgörum en þeir voru sýknaðir þar sem saksóknara tókst ekki að færa sönnur á að búlgarska leyniþjónustan hefði ráðið Agca til að myrða páfa fyrir sovéska ráðamenn. Kafli um tilræðið var í skýrslu Mitrokhin-nefndarinnar sem rannsakaði uppljóstranir Rússans Vasilis Mitrokhins sem flúði til Bretlands árið 1992. Í fyrra hóf ítölsk þingnefnd rannsókn á tilræðinu á ný og mun skýrsla hennar liggja fyrir síðar í þessum mánuði. Fréttastofa Reuters hefur hana þó undir höndum. Ákveðið var að opna málið aftur eftir að páfi sjálfur lýsti því yfir í bókinni að hann væri sannfærður um að einhver annar en Agca hefði skipulagt tilræðið og fengið hann til að ráða sig af dögum.
Erlent Fréttir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Sjá meira