Erlent

Litlar líkur á að fuglaflensan stökkbreytist

MYND/AP

Afar litlar líkur eru á að fuglaflensan stökkbreytist og verði að faraldri í mönnum. Þetta sagði helsti vísindaráðgjafi ríkistjórnar Bretlands, Sir David King í gær. Sýni úr svani sem fannst dauður í Skotlandi í síðustu viku reyndist vera með H5N1-afbrigði fuglaflensuveirunnar. Síðan þá hafa þúsundir manna hringt inn og tilkynnt um dauða fugla en veiran hefur ekki greinst í öðru tilfelli. King segir þó mikilvægt að vera vel á verði. Forsætisráðherra heimastjórnar Skotlands, Jack McConnell, segir viðbrögðin við fuglaflensusmitinu hafa verið skjót, árangursrík og vel skipulögð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×