Nýrri öryggissveit mótmælt 18. maí 2006 13:00 MYND/AP
Tugir vopnaðra Fatah-liða hröktu vara-forsætisráðherra heimastjórnar Palestínumanna á flótta úr borg á Vesturbakkanum í morgun, þar sem hann var kominn til fundar. Spenna milli stuðningsmanna Hamas og Fatah á Vesturbakkanum hefur magnast síðustu daga, sér í lagi eftir að heimastjórn Hamas stofnaði eigin öryggissveit í gær. Nasser Shaer, vara forsætisráðherra í stjórn Hamas-liða, mætti til fundar í bænum Tulkarem á Vesturbakkanum í morgun. Þar átti hann að ræða við ráðamenn á svæðinu. Skipti engum togum að byssumenn hliðhollir Fatah-hreyfingu Mahmouds Abbas, forseta, umkringdu fundarstaðinn. Shaer var færður út úr byggingunni í fylg lögreglu og segja sjónarvottar að heyra hafi mátt hleypt af byssum í bakgrunninum. Leiðtogi Al-Aqsa-herdeildanna í Tulkarem sagði Hamas-liða ekki velkomna þangað. Spenna milli Fatah og Hamas-liða hefur magnast á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni síðustu dag og ekki bætti úr skák þegar Hamas-stjórnin tilkynnti í gær um skipan 3000 manna öryggissveitar á þeirra vegum. Sú skýring er gefin að þær sveitir sem fyrir séu hafi ekki staðið sig sem skyldi. Fyrir mánuði skipaði Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, einn fylgismanna sinna sem stjórnanda stærstu og mikilvægustu sveitarinnar. Í morgun streymdu palestínskir lögreglumenn, hliðhollir Abbas, á götur Gaza-borgar og marseruðu rétt fyrir aftan liðsmenn nýju öryggissveitarinnar og söngluðu að þeir væru yfirvaldið og þeir hylltu Abbas. Nýju sérsveitarmennirnir brugðust ekki ókvæða við því eða æfingum lögreglumannanna nálgæt eftirlitsstöðvum nýju sveitanna. Lögreglumennirnir voru óvopnaðir en yfirmenn þeirra fylgdu eftir á jeppum, gráir fyrir járnum. Fregnir herma að Abbas hafi síðan í gærkvöldi krafist þess að Hamas-stjórnin leysti upp þessa nýju sveit. Það fer þvert á yfirlýsingar Ismails Haniyeh, forsætisráðherra í Hamas-stjórninni, sem sagði í morgun að fengist hefði samþykki forsetans fyrir skipan sveitarinnar og hún sé því skipað samkvæmt lagabókstafnum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira