Erlent

Mikil mótmæli skipulögð í Danmörku

Kristjánsborgarhöll, sem Danirnir kalla Christiansborg Slot.
Kristjánsborgarhöll, sem Danirnir kalla Christiansborg Slot. MYND/af netinu

Nemendur í viðskiptaskólum vítt og breitt í Danmörku leggja niður nám og umfangsmikil mótmæli eru skipulögð í Kaupmannahöfn í dag, þar sem nemendur munu ganga í breiðfylkingu að þinghúsi Dana í Kristjánsborgarhöllinni. Þetta er hluti af miklum mótmælum og verkföllum framhaldsskólanema og nú viðskiptaskólanema vegna bágs fjárhags framhaldsskólanna í Danmörku.

Auk þessa eru mótmæli og verkföll fyrirhuguð í verslunarskólum víða um land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×