Erlent

Allsherjarverkfall lamar þjóðfélagið í Bangladess

MYND/AP

Allsherjarverkfall er nú í gildi í Bangladess til stuðnings fylkingu stjórnarandstöðuflokka sem krefst þess að ný kjörnefnd verði skipuð fyrir þingkosningar á næsta ári, vegna meintrar spillingar í núverandi kjörnefnd. Forsetinn hélt neyðarfund með bráðabirgðaríkisstjórn í gær en án árangurs.

Miklar óeirðir og verkföll hafa lamað allt þjóðfélagið undanfarna daga. Bráðabirgðastjórninni hafði verið gefinn frestur fram á sunnudag til þess að verða við kröfum óánægðra samlanda sinna og er þjóðfélagið nú lamað vegna pólitískrar pattstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×