Erlent

Telur að brotthvarf Bandaríkjamanna dragi úr ofbeldi í Írak

Walid Moallem, utanríkisráðherra Sýrlands, t.v., hefur fundað með íröskum starfsbróður sínum, Hoshyar Zebari, t.h.
Walid Moallem, utanríkisráðherra Sýrlands, t.v., hefur fundað með íröskum starfsbróður sínum, Hoshyar Zebari, t.h. MYND/AP

Utanríkisráðherra Sýrlands sagði í gær að ef ákveðið og tilkynnt yrði hvenær Bandaríkjamenn hyrfu á brott frá Írak, þá myndi draga úr ofbeldinu í landinu. Sýrlenski utanríkisráðherrann er nú í opinberri heimsókn í Írak, sem telst til nokkurra tíðinda, því löndin slitu stjórnmálasambandi árið 1982.

Ráðherrarnir sögðust hafa rætt að taka upp stjórnmálasamband á ný. Bandaríkjamenn hafa enn ekki beðið formlega um stuðning Sýrlands og Írans við lausn ástandsins í Írak, þó svo að hugmyndir þess efnis hafi verið viðraðar.

Bandaríkjamenn og fleiri ríki hafa gagnrýnt Sýrland fyrir að hafa ekki betra eftirlit með löngum landamærum sínum við Írak, þar sem grunur leikur á að öfgatrúaðir bardagamenn fari þá leiðina inn í Írak til að berjast við hlið þarlendra skæruliða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×