Erlent

Allawi óttast að Írak sé að liðast í sundur

Ayad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, óttast að Írak sé að leysast upp í innbyrðis ofbeldi.
Ayad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, óttast að Írak sé að leysast upp í innbyrðis ofbeldi. MYND/AP

Ayad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, sagðist í gær óttast að land sitt sé að liðast í sundur. Hann segir að það muni aðeins auka á ofbeldið ef þjóðinni er skipt niður eftir trúarhópum eða þjóðarbrotum. Allawi tók við embætti forsætisráðherra fyrst eftir að Saddam Hússein var hrakinn frá völdum en tapaði fyrir öfgatrúuðum sjíum.

Hann sagði að þá hafi hann ekki getað ímyndað sér ofbeldið sem nú hrjáir Írak. Hann stjórnar sjálfur ótrúbundnum samsteypuflokki hófsamra sjía, súnnía og Kúrda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×