Erlent

12.500 milljarðar króna til vopnakaupa í Rússlandi

Pútín á fundi með herforingjum í rússneska hernum.
Pútín á fundi með herforingjum í rússneska hernum. MYND/AP

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, sagði á fundi með yfirmönnum í rússneska hernum að kjarnorkuvopn Rússa yrðu áfram að vera fær um að eyða hverjum þeim óvini sem ógni Rússlandi, hann hafi af því tilefni samþykkt nýja vopnaáætlun fram til ársins 2015. Rúmlega 12.500 milljarðar króna eru eyrnamerktir fyrir þessa vopnaáætlun.

Mikill meirihluti þeirra peninga verður notaður til að endurnýja og uppfæra vopnabúr Rússa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×