Erlent

Hjálparstarf í hættu í Darfur

Egeland, lengst til hægri, við komuna til Darfur.
Egeland, lengst til hægri, við komuna til Darfur. MYND/APTN

Jan Egeland, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, varaði í gær við að hætt væri við að starf hjálparstofnana í Darfur-héraði í vesturhluta Súdans lamist nær algjörlega ef ofbeldi færðist enn í aukana. Hann sagði að það öryggi sem hafi verið til staðar til skamms tíma sé nú hverfandi.

Flóttamenn sem búa tugþúsundum saman í búðum rétt utan við stærstu borg héraðsins komu til fundar við Egeland og skýrðu honum frá stöðunni, þar sem ekki var talið öruggt fyrir Egeland sjálfan að fara svo langt frá borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×