Erlent

Óumdeildur stórsigur hjá Ségolène Royal

Royal hefur raunhæfan möguleika á að verða fyrsta konan í embætti forseta í Frakklandi.
Royal hefur raunhæfan möguleika á að verða fyrsta konan í embætti forseta í Frakklandi. MYND/AP

Ségolène Royal vann óumdeildan stórsigur á keppinautum sínum í forvali franska Sósíalistaflokksins og hefur því sterkt umboð flokksins, sem alltof oft hefur verið klofinn. Hún fékk rúm 60% atkvæða í forvalinu á meðan keppinautar hennar tveir, báðir eldri flokksmenn og fyrrverandi ráðherrar, skiptu afganginum á milli sín.

Þar sem hún fær meira en 50% atkvæða þarf ekki aðra umferð í forvalinu. Kannanir höfðu sýnt að hún hafði mest fylgi frambjóðendanna en svo stórum sigri höfðu fáir þorað að spá. Nýjustu kannanir fyrir forsetakosningarnar sem haldnar verða í apríl og maí sýna að hún hefur mjög svipaðan stuðning og helsti keppinauturinn, innanríkisráðherrann Nicholas Sarkozy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×