Réttað á ný yfir Guantanamo-föngum 7. september 2006 12:30
Bandarískir saksóknarar segja að réttarhöld yfir föngum sem haldið hefur verið án dóms og laga í Guantanamo-búðunum á Kúbu geti haldið áfram í byrjun næsta árs. Þeirra á meðal eru skipuleggjendur hryðjuverkaárásanna ellefta september. Col Davis, yfirsaksóknari bandaríska varnarmálaráðuneytisins, sagði í samtali við AP fréttastofuna að hann byggist við að réttarhöldin gætu hafist strax á fyrstu dögum komandi árs. Réttarhöldunum var frestað í júní síðastliðnum þegar hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi það ólöglegt að herréttur réttaði yfir föngunum. Meðal fanganna eru 14 hættulegustu hryðjuverkamanna sem Bandaríkjamenn hafa haft í haldi og sagði Bush Bandaríkjaforseti í gær að þeir hefðu verið vistaðir í leynifangelsum bandarísku leyniþjónustunnar áður en þeir komu til Guantanamo. Þetta var í fyrsta skipti sem hann viðurkennir tilvist leynifangelsanna en þau komust í hámæli í sumar eftir að nefnd á vegum Evrópuráðsins undir forystu Dicks Martys gaf út skýrslu um þau og samvinnuþýðni nokkurra Evrópuríkja með fangaflug leyniþjónustunnar. Bush sagði umdeildar yfirheyrsluaðferðir CIA mikilvægar og þær hjálpuðu til við að bjarga mannslífum. Hann sagði að þeir sem best gætu gefið upplýsingar um hvar hryðjuverkamennirnir haldi sig eru hryðjuverkamennirnir sjálfir. Hann þvertók þó fyrir að pyntingar hafi verið notaðar fyrr eða síðar af Bandaríkjamönnum og bætti því við að réttindi allra fanga væru vernduð undir ákvæðum Genfar-sáttmálans.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Stöðvuðu rekstur öryggisþjónustu og lokuðu þremur skemmtistöðum Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Áfram bongó í kortunum og nú um allt land Veður „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Fleiri fréttir Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Sjá meira