Erlent

Provenzano þögull sem gröfin

Bernardo Provenzano, yfirmaður mafíunnar á Sikiley.
Bernardo Provenzano, yfirmaður mafíunnar á Sikiley. MYND/AP

Bernardo Provenzano, yfirmaður mafíunnar á Sikiley, hefur verið þögull sem gröfin síðan hann var handtekin í gær. Hann hefur verið á flótta í rúma fjóra áratugi. Provenzano var fluttur til Palermo í dag.

Þrátt fyrir ítarlega leit tókst lögreglu ekki að hafa hendur í hári hans fyrr en í gær. Provenzano, sem er 73 ára, hefur stjórnað aðgerðum mafíunnar undanfarin 13 ár, eða síðan Toto Riina, sem þá var yfirmaður mafíunnar, var handtekinn í Palermo.

Lögregla hefur grandskoðað felustað Provenzanos síðan í gær en hann hélt til á niðurníddum sveitabæ í heimabæ sínum Corleone sem er sagður valdamiðstöð mafíunnar.

Svo slyngur hefur Provenzano verið á flótta sínum, að fyrir handtökuna var nýjasta mynd lögreglunnar af honum frá árinu 1959.

Provenzano mun hafa komist undan löngum armi laganna með því að flytja sig milli bóndabýla á Sikiley með nokkurra nátta millibili. Hann mun hafa skrifað skipanir sínar niður á blað hverju sinni þar sem treysti ekki nýjustu tækni og sagði auðvelt að hlera farsíma.

Hann var dæmdur í þrefalt lífstíðarfangelsi í réttarhöldum sem fóru fram að honum fjarstöddum. Provenzano er nú í einangrun og neitar að yrða á lögreglumenn. Fylgst er með honum náið enda er hann sagður heilsuveill og svo gæti farið að það yrði að flytja hann í annað fangelsi sökum þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×