Erlent

Kína gerir tilslakanir gagnvart Bandaríkjunum

Kína hefur gert nokkrar viðskiptatilslakanir gagnvart Bandaríkjunum nú skömmu áður en að forseti landsins, Hu Jintao, heimsækir Bandaríkin í næstu viku. Yfirvöld í Peking hafa afnumið innflutningsbann á bandarísku nautakjöti og gert bandarískum fyrirtækjum auðveldara að bjóða í samninga á vegum ríkissins. Þá hét Wu Yi, aðstoðarforsætisráðherra Kína að herða eftirlit með ólöglegum útgáfum af geisladiskum og DVD-myndum. Wu Yi er nú á ferðalagi í Bandaríkjunum, og fer hún fyrir 200 manna kínverskri viðskiptasendinefnd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×