Erlent

Berlusconi vill ríkisstjórn olívubandalags og hægri flokka

Romano Prodi lýsti í dag yfir sigri vinstrimanna í þingkosningunum á Ítalíu en Silvio Berlusconi forsætisráðherra fer fram á endurtalningu. Hann leggur einnig til að fylkingarnar tvær sameinist í stórri ríkisstjórn sem allir landsmenn geti sætt sig við. Miðað við fyrstu viðbrögð úr herbúðum Prodis verður að teljast ólíklegt að tillaga Berlusconis verði að veruleika.

Það er óhætt að segja að ítalskir stjórnmálaleiðtogar hafi átt ótrúlega nótt. Fyrst fögnuðu vinstrimenn sigri, enda benti allt til þess að hann væri í höfn. Þegar á leið sótti flokkabandalag Berlusconis hins vegar í sig veðrið og þegar öll atkvæði höfðu verið talin innanlands, höfðu bandalögin unnið sitt hvora þingdeildina og allar líkur á að kjósa þyrfti

aftur.

Það voru svo nokkur hundruð þúsund Ítalir í útlöndum sem riðu baggamuninn en þeir fá að kjósa átján þingmenn. Þegar þeirra atkvæði höfðu loks verið talin undir hádegi í dag, varð ljóst að Prodi mun taka aftur við stjórnartaumunum í Róm.

Hægrabandalagið er ekki tilbúið að gefa öldungadeildina eftir baráttulaust. Ólífubandalagið er með öruggan meirihluta í neðri deildinni þrátt fyrir að munurinn á fylginu þar hafi aðeins verið 0,1 prósentustig, en það er aðeins með tveggja þingmanna meirihluta í öldungadeildinni og færri atkvæði en hægrimenn.

Prodi segist ætla að mynda níu flokka ríkisstjórn sem muni stýra landinu

næstu fimm árin. En góður vilji er ekki nóg og af því hafa Ítalir áhyggjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×