Erlent

Minnst 40 féllu í sprengjuárás í Pakistan

MYND/AP

Að minnsta kosti 40 féllu og fjölmargir særðust þegar öflug sprengja sprakk í garði í hafnarborginni Karachi í Pakistan í dag. Múslimar höfðu safnast þar saman til að fagna fæðingardegi Múhameðs spámanns. 

Sprengjunni mun hafa verið komið fyrir undir sviði sem súnní-múslimar höfðu reist. Viðstaddir urðu skeflingu lostnir og afar reiðir þegar ljóst var hvað hafði gerst og æstur múgurinn grýtti lögreglumenn og brenndi bíla sem lagt hafði verið í nágrenninu.

Ekki er ljóst á þessari stundu hverjir bera ábyrgð á sprengjuárásinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×