Má vart á milli sjá 10. apríl 2006 22:11 Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. MYND/AP
Lokaspretturinn í ítölsku þingkosningunum hefur verið hörkuspennandi en svo virðist sem stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, ætli að halda naumum meirihluta í efri deild þingsins en missa hann naumlega í neðri deild. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta. Það var um klukkan eitt í dag að íslenskum tíma sem fyrstu útgönguspár voru birtar en þá var kjörstöðum lokað. Samkvæmt spám var ólívubandalag Romano Prodis með forystu á hægri fylkingu Berlusconis, forsætisráðherra, eða á bilinu 50 til 54% atkvæða á móti 45 til 49%. Þar með virtist sitjandi stjórn fallin. Stjórn sem hefur verið við völd frá árinu 2001, lengur en nokkur önnur frá lýðveldisstofnuninni 1946. Þegar byrjað var að birta opinberar tölur í kvöld kom í ljós að munurinn var mun minni og spennan hefur verið nánast óbærileg. Samkvæmt nýjustu tölum á vefsíðu ítalska blaðsins Republice rétt fyrir kl. 22 í kvöld var búið að telja rúmlega tvo þriðju greiddra atkvæða í neðri deild og hefur bandalag Prodis 49,1% atkvæða en hægri bandalag Berlusconis 50%. Í efri deild er búið að telja meirihluta atkvæða og hefur Ólívubandalagið 50,5% atkvæða en stjórnarflokkarnir 48,9%. Þar með heldur stjórnin naumum meirihluta í efri deild en tapar meirihlutanum naumlega í neðri deild. Eftir er þó að sjá hvernig þingsæti skiptast. Ef þetta verður niðurstaðan gæti þurft að kjósa á nýjan leik en stjórnmálaskýrendur á Ítalíu segja afar ólíklegt að hægt verði að mynda stjórn hægri og vinstri aflana eftir þann fúkyrðaflaum sem hefur gengið á milli forystumannanna í kosningabaráttunni. Prodi hefur líkt Berulsconi við fylliraft og Berlusconi kallað kjósendur ólívubandalagsins fávita. Það má því segja að þjóðin sé klofin í afstöðu sinni og vildu flestir hafa áhrif á niðurstöðuna en kjörsókn var um 85% samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu. Kjörsókn var nokkuð meiri á Norður-Ítalíu en í suðurhluta landsins. Minnst mun hún hafa verið á Sikiley og Sardiníu.
Erlent Fréttir Mest lesið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Sjá meira